Jæja nú er sara mín tælandi.. meina Í tælandi og mér leiðist duldið, svo ég ákvað að stofna bloggsíðu fyrir okkur saman, hún veit það ekki því að ég er ekki búinn að heyra í henni síðan á sunnudagin þegar ég skutlaði henni á flugvöllinn, hún er sennilega einhverstaðar í frumskóginum ríðandi á fílum, kannski ekki í símasambandi.
EN ég er góður, það er svo mikið að gera hjá mér í vinnunni og í sumaróperunni að ég fæ engan frið til að slaka á. við erum um það bil hálfnuð með æfingar og sýningin verður 3 júní. Ég veit það virðist vera dáldið stuttur tími til að æfa 5 óperur, eða senur úr 5 óperum. ég fer með eitt stórt hlutverk í rinaldo eftir handel sem goffredo sem er konungur kristna manna. og svo syng ég tríó í fairy queen og svo er ég í kórnum í öllum hinum.
í gærkvöldi hélt ég óperuæfingu heima hjá mér. Það var þannig að við mættum öll fyrir framan neskirkju þar sem æfingin átti að vera, en þegar við gengum inn komumst við að því að þar voru tónleikar í gangi og æfing í kjallaranum. hmm, þvílíkt klúður. Á endanum bauð ég bara öllum heim í litlu íbúðina mína og við æfðum þar, ég veit ekki hvort að nágrönnunum hafi staðið á sama en ég fékk allavega engar kvartanir :o)
ok nóg blogg í dag, sara kemur ekki heim fyrr en eftir 3 vikur, þannig að þangað til mun ég bara blogga, heyrumst!!
þriðjudagur, 22. maí 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Sendu inn athugasemd