miðvikudagur, 23. maí 2007

Húsnæðisvesen

Jæja ég heyrði frá Söru í dag, það er nefnilega held ég 6 tíma mismunur, og hún sagði mér að hún væri að fara í frumskóginn, þar tekur við fílareiðar og allt svoleiðis, ég talaði samt svo stutt við hana að ég frétti ekki meira, það er svo dýrt að tala í síma.

Okkur vantar íbúð, við erum búin að gefast upp á að reyna að finna íbúð til leigu á sæmilegu verði, við erum ákvein í að kaupa bara íbúð. Íbúðin sem við búum í núna var seld til annars manns sem ætlaði að leigja hana áfram, en ákvað að hækka leiguna úr 70.000 í 95.000!! Það er ekki að ræða það að við borgum svo mikið í leigu. En til allrar hamingju fundum við íbúð á viðráðanlegu verði en hún var leigð á 85.000 af fyrri eigendum og með henni fylgdi lítið herbergi á háaloftinu sem við máttum leigja út svart á svona 15-20.000. En NEI!! þá fengum við svar í Emaili að leigusalinn ætlaði að leigja hana á 110.000!! glætan spætan!
Það er fáránlegt að það er ekki hægt að finna íbúð hér í bæ á viðráðanlegu verði fyrir námsmenn annað en 30m2 stúdíóíbúð. Nota bene að við komumst aldrei inn stúdentagarða þó að Ég sé í Listaháskólanum og Sara í Háskóla Íslands. Einhver sagði mér að það væru íbúðir á hersvæðinu í Keflavík til leigu fyrir námsmenn á ótrúlega góðu verði og strætóferðir á milli, en ég er ekki alveg tilbúinn að sitja í strætó í klukkutíma á morgnanna.

Ég læt ykkur vita þegar ég finn einhverja góða íbúð til sölu hér í Reykjavík og posta ykkur hlekkinn til að fá ykkar skoðun.

Bæbbs

0 comments: