Ég er enginn sóði samt, ég tók alveg til ég bara gerði ekki eins mikið af því og venjulega, ég tók vel til áður en sara kom heim svo hún fengi ekki fit við að sjá allt draslið.
Þetta gekk vel á laugardaginn með ómari, við fengum mikið lof, það fyndna var að við vorum eiginlega ekkert búnir að æfa okkur saman en samt small þetta svo vel saman. Við erum náttúrulega búnir að spila svo mikið saman að þetta er ekkert mál fyrir okkur. Við byrjuðum að spila kl 9 og spiluðum fyrir dansi nánast streytulaust til 2, þá lokaði húsið og við fórum heim til tengdó í partý.
Ég ætla að sjá til þess að sara bloggi aðeins af ferðum sínum því ég nenni því ekki
Bæbæ
0 comments:
Sendu inn athugasemd