Sæl verið þið, ég veit að ég (Sara) hef ekkert bloggað síðan ég kom frá Tælandi svo ég setti inn nokkrar myndir sem segja nokkurn vegin söguna. Endilega allir að skoða þær þar sem ég nenni ekki að skrifa alla ferðasöguna þar sem hún yrði alltof löng og gloppótt, enda orðið svo langt frá því að ég kom heim. Þið finnið myndirnar undir Steini og Sara myndir.
Það sem er efst á pólnum þessa dagana hjá okkur skötuhjúum er íbúðarleit á hæsta stigi og ég held að ég tali fyrir hönd okkar beggja þegar ég segi að þetta er orðið mjög leiðinlegt og þreytandi. Flest allt sem við höfum áhuga á er dýrt eða þegar búið að leigja það út jafnvel þó að við höfum samband við fólkið samdægurs.
Annars á ég von á mömmu og pabba í heimsókn á morgun þar sem þau eru að fara til Bandaríkanna að heimsækja Helgu systir. Þau eiga vonandi eftir að koma heil heim en þar sem það er hásumar þarna úti og allt skraufa þurrt og mjög heitt þá hef ég bara dálitlar áhyggjur af þeim enda ekki lengur nein unglömb.
Ég bið bara að heilsa í bili
Kær kveðja Sara
miðvikudagur, 11. júlí 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Var að skoða myndirnar frá Tælandi :) Vildi óska að við værum þar núna í sólinni
Kv. Katrín
Skrifa ummæli