fimmtudagur, 22. nóvember 2007

Long time no blogg!!

Jæja, mig langar bara að láta vita að ég er enn á lífi, og sara líka síðast þegar ég gáði, hún sýndi allavega viðbrögð þegar ég potaði í hana í morgun er hún lá í rúminu. Ég var að koma úr tónbókmenntaprófi, sama hvað maður lærir mikið þá finnst manni maður vera hálfgerð geimvera þegar maður kemur í prófið.
Þetta er síðasti dagurinn minn í skólanum á þessu ári, eiginlega. Já sko sjáiði til, ég er ekki í skólanum á föstudögum, þ.e. á morgun, og í næstu viku verður kynningarvika um hljóðblöndun, gaman gaman. svo er ég alveg búinn, ég lofa. þarf bara að garga eitthvað á jólatónleikum 11. Desember, endilega koma, ég lofa syngja voða sætt, músjímúsjí (: Mætið kl 8, held ég, jú kl 8. Á þessu kvöldi munu syngja 3 nemendur, tveir söngvarar og flautuleikari, en endilega komið á allt, þetta er svona 1 og 1/2 tími. bæbæ elskurnar.

0 comments: