þriðjudagur, 1. janúar 2008

Gleðilegt nýtt ár


Jæja þá er komið að því...nýtt ár er hafið. Við skulum vona að þetta ár verði jafn æðislega skemmtilegt og það liðna. Allavega er margt á plönunum hjá mér á þessu nýja ári þar á meðal er að byrja í mastersnámi og jafnvel ferðast eitthvað erlendis hvort sem það verður til vinnu eða leiks.
Jólin eru búin að vera mjög skemmtileg, mikið borðað og mikið hlegið. Helstu brandararnir hérna heima hjá mömmu og pabba hafa verið sæll og eigum við að ræða þetta eitthvað frekar. Sagan var nefnilega þannig að mamma fór að þvo bílinn á bílaþvottastöð sem kostaði svolítið mikinn pening að hennar mati. Þegar hún kom til baka spyr pabbi hvað þetta hafi kostað og hún segir ,,sæll, eigum við að ræða þetta eitthvað frekar. Ég setti næturvaktina inn á flakkarann hans pabba svo hann gæti nú horft á þessa margfrægu þætti. Svo var þetta búið að vera í gangi allan morguninn. Búnir voru svona 8 þættir í röð þegar mamma sagði ,,hvað er bara verið að sýna þessa þætti endalaust, er bara engin pása" hún var ekkert að átta sig, þó svo að það kæmi loading á milli hvers þáttar að verið væri að spila þetta af flakkaranum. Hélt greinilega að einhver hefði verið svo góður að borga af stöð 2 yfir jólin.
Á aðfangadagskvöldi í Langholtinu var mjög góðmennt, og voru pakkarnir ekki af slakara taginu. Þar má helst nefna snjóbrettið, brettaskona og bindingarnar frá mömmu, pabba og Steina. Svo Arna mín við verðum nú að fara að drífa okkur í Bláfjöll eða jafnvel bara í smá ferð til Akureyrar. Áramótin voru ekkert siðri þar sem hann Steini minn var nú kominn í heimsókn til okkar til að fagna nýju ári. Fóru þá pabbi og Nonni bróðir inn í sveit og keyptu þar stærsta flugeldapakkann sem tók þó ekki mjög langan tíma að sprengja í tætlur þar sem við höfðum gott fólk í þetta.


Kveðja Sara

P.s. ég set hér inn video af Helgu systir að renna sér í snjónum á jóladag...rosastuð greinilega þó það hefði verið svolítið old fashion stíll á þessu.
video

0 comments: