fimmtudagur, 24. janúar 2008

Sælir vinir, það er sko nóg að gera hjá okkur þessa dagana...

Sara er á fullu í skólanum, hún er aðallega í labbanum þessa dagana "Doing her evil experiments, múhahaha!!" neinei, Veiru og bakteríuræktun, DNA splæsingu, gersveppa-greiningu, eitthvað af þessu. Ég dett alltaf út þegar ég spyr hana hvað hún gerði í dag, það er svo flókið og svo margar skammstafanir að ég er bara hættur að spyrja!!

Hún hefur tekið að sér að kenna einhvern fjandann. Mér finnst það mjög gaman að hún er að kenna samnemendum sínum og fólki sem er komið lengra en hún í námi.

Ég er að vinna að óperuverkefni í LHÍ. Við ætlum að sýna senur úr óperunum Carmen og Der freischutz og erum á fullu að vinna í því þessa dagana, sýnt verður í febrúar. Svo í sama mánuði byrjar óperustúdíó Íslensku óperunnar sem ég er í kórnum og verkið er Cosí fan tutti. og verður sýnt í byrjun apríl.



En annars voða lítið að frétta... Bogi besti vinur minn og æskuvinur var að verða pabbi, til hamingju með það, hann eignaðist strák með Hrund, unnustu sinni. Bróðir minn var líka að eignast son þann 2. nóvember, Hrönn systir Söru er ólett og komin 5 mánuði á leið, Júlía kona Villa bróðir söru er einnig ólétt og svo er frænka mín og nágranni einnig ólett.

Ég held það sé eitthvað baby boom í gangi hérna, maður er farinn að fá pressu til að gera það sama!! En engar áhyggjur við erum ekkert að flýta okkur, Við erum ekki einusinni farin að hugsa um það.

Til hamingju með það öllsömul!!

Margrét Brynja með Sigurð Helga Hlöðversson

Takk fyrir og góða nótt kveðja Steini Stuð

3 comments:

Hrönn sagði...

ég vissi ekki að ég væri komin 8 mánuði. ég er reyndar bara komin 25 vikur eða rúmlega 5 mánuði og tvær vikur

Sara sæta sagði...

Ég vildi bara taka það fram að ég var ekki spurð um nein atriði sem komu fram í þessu bloggi enda nokkuð um villur!!! Hrönn ekki taka það sem svo að ég hafi haldið að þú værir komin 8 mánuði á leið...þó bumban sé orðin stór þá er hún ekki orðin svo stór!!!

steinifreyr sagði...

sorrý hrönn, eins og þú kannski last þá eru svo margir að eiga eða nýbúnir að eiga að ég ruglaðist