Þá eru þessi herlegheit búin, sýningin gekk ótrúlega vel og allir stóðu sig rosalega vel, ég er ekki með nákvæma tölu en ég held að við höfum dregið að um 70 manns, það er nokkuð gott. Eftir sýningun þegar ég var búinn að kyssa alla ættingjanna skáluðum við í kampavíni, þaðan lá leið okkar heim til Hall og Heiðrúnar í partý. Við vorum þar til svona 1, pöntuðum okkur pizzu og fórum svo niður á Ölstofuna, Ásgerður búningastýra vinnur þar svo við fengum að vera þar eftir lokunm við vorum orðin shitt full og fórum kl rúmlega 2 heim til Hrólfs, þar tók við annað partý þar sem Færeyingurinn Kristian spila á gítar og við sungum, það er satt að allir færeyingar spila á gítar, ég spurði. Við vorum orðin ferlega full og partíðið endaði kl 5 þegar við fórum og hjálpðum hrólfi að pakka og að finna passann sinn því hann var á leiðinni útá flugvöll til að fljúga til frakklands að syngja á tónleikum. Ég kom heim kl tæplega 6 en verst fyrir mig að ég var að fara að vinna kl 10 í morgun.
Það var ekki gaman að vakna í morgun. Mér tókst að drösla mér í sturtu en tókst svo að sofna í sturtunni, nokkuð gott! En það var samt ótrúlega gott að geta farið í sömu fötunum í vinnuna daginn eftir því það var engin reykingarstybbufýla í fötunum, þægilegt! En um leið og ég var kominn yfir það að vera þreyttur eftir svona 10 kaffibolla var ég farinn að finna fyrir þynku og rétt fyrir lokun var ég gersamlega ónýtur!
Sara mín kemur aftur 12 júní, það fer að styttast í það, jú það er ágætt að vera einn en það er svo depressing að vera einn í langan tíma, þessvegna verður gott þegar hún kemur aftur. En fyrir ykkur sem komust ekki á tónleikana þá er skylda að koma á í ágúst þegar við sýnum þetta aftur en þá tökum við alvöru sviðsetningu og lengri senur í hverri óperu.
Nenni ekki að blogga meira er alltof þreyttur og þunnur, bæjó
mánudagur, 4. júní 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Sendu inn athugasemd