Nú er skólinn víst byrjaður hjá okkur báðum, Steini byrjaði þó á mánudaginn í síðustu viku og líkar það bara rosalega vel. Ég byrjaði þó ekki fyrr en í morgun kl. 8:20 en þá var fyrsti fyrirlesturinn minn og byrjar skólinn bara á fullum krafti. Ég verð nú að vinna eitthvað með skólanum þar sem ég get engan veginn slitið mig frá vinnunni, er að skemmta mér svo rosalega vel við að vinna svona á rannsóknarstofunni. Ég er reyndar búin að tala við leiðbeinandann minn um að fá 30 % vinnu núna í haust og eftir áramót tek ég þetta verkefni mitt sem 6 einingar rannsóknarverkefni.
Ég verð nú líklegast að tala um eitthvað annað meira skemmtilegra en vinnuna og skólann, því ég er búin að gera margt skemmtilegt síðustu vikurnar frá því ég bloggaði. Meðal þess helsta er;
- 22 ára afmæliparty hjá Siggu upp á Akranesi, sem endaði með heljarins beili þar sem við vinkonurnar skelltum okkur til RVK á djamm sem endaði svo með því að við fórum bara allar heim að sofa.
- Verslunarmannahelgin þar sem við Steini skruppum ásamt Kötu og Kalla til Akureyrar að hitta fjölskylduna.
-Útilega með Hrönn og Ómari í Húsafelli sem endaði svo í RVK á laugardeginum þar sem farið var á óperutónleika hjá honum Steina mínum. Vel sungið þar!!!
Jæja þá er ég búin að segja frá helstu atriðum sumarsins svo ætli ég láti þetta ekki duga í bili.
Kveðja Sara
þriðjudagur, 28. ágúst 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Loksins eg er buin ad kikja a hverjum degi i meira en manud.... Gaman ad heyra hvad allt er gaman :) :) nota thad ospart nuna...
Sorry það er voðalega erfitt að byrja að blogga svona, það veður eitthvað merkilegt að hafa gerst svo það se þess virði að skrifa um það!!!
hæ, fann bloggið ykkar á facebookinu hans steina:) :) þið eruð svo sæt:)
Hæ var bara að finna bloggið, einmitt á facebook, hefði viljað sjá óperuna
Skrifa ummæli