fimmtudagur, 28. febrúar 2008

Á leiðinni til USA í sumar

Jæja þá er loksins komið að því, það er komið lokasvar frá Caltech háskólanum og ég fæ að taka þátt í SURF programinu!!!
Fyrir ykkur sem vitið ekki alveg um hvað málið snýst þá sótti ég um að fá að taka þátt í SURF verkefninu í Caltech í vetur og fékk sem sagt inn. Verkefnið snýst um það að vinna á labba hjá dr. Marianne Bronner-Fraser sem er að rannsaka hnoðakambsfrumur sem eru nokkurskonar taugastofnfrumur. Þetta er mjög skemmtilegt og krefjandi verkefni í einum af bestu háskólum heims!

Jæja verð að fylgjast með í tíma...varð bara að deila þessu með ykkur

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Geðveikt til hamingju!!!! en þú mátt ekki fara fyrr en strákurinn er fæddur og búið að skíra!!!

Steini og Sara sagði...

Nei nei ég lofa því!

Nafnlaus sagði...

Hæhæ! Til hamingju með þetta!! Sá að þú varst búin að kommenta á bloggið mitt - ég bara varð að setja þetta inn, mér finnst þetta svo flott hjá þér!!
Gaman að þið séuð búin að blogga smá, ég var eiginlega alveg búin að gefast upp á að kíkka hérna inn.. ;) En þú verður að reyna að blogga í sumar og leyfa mér að fylgjast með þér!
Og by the way, hvað er enska heitið á þessum kamb-eitthvað-frumum? Íslenska nafnið segir mér amk ekki neitt.
Koss og knús!
Elsa :)