
Ahh hvað það er gott að vera laus við þessar kjellingar, voru samtölin sem fleygðu fram og til baka í litlu íbúðinni Rúnars og Adams í gærkvöldi, ekki það að ég sé eitthvað sammála því en svona segja víst drukknir, konulausir karlmenn til að sýnast... tja karlmennskulegir. Já stelpur við meinum ekkert með því, við þurfum bara að hleypa karlmennskusvíninu út að leika svona öðruhverju svo við getum verið ofur elskulegir við ykkur þegar þið komið aftur.
Ég er konulaus, Rúnar er konulaus og meðleigjandalaus og Eiki er bara alveg konulaus yfir höfuð, að sjálfsögðu af eigin vali. Við pöntuðum pizzu drukkum bjór og spiluðum Mortal Kombat og Fifa Street, og spjölluðum um kjellingar. Eftir nokkuð marga bjóra og nokkuð marga tölvuleiki fórum við í bæinn, tókum taxa og stoppuðum hjá fyrstu skvísunum sem við sáum. Fórum samt bara inn á glaumbar og fengum okkur nokkra drykki, þegar það var orðið frekar dauflegt fórum við á hressó og þegar það var orðið dáldið dauflegt fórum við aftur á glaumbar og svo framvegis... Hvað okkur datt ekkert annað í hug! Svo vorum við líka fullir og skrítnir. Eftir nokkra göngutúra fram og til baka var rúnar orðinn dáldið fullur og Eiki var orðinn svoldið týndur, en hvað um það.
Svoldið skrýtið kom fyrir mig á glaumbar. Ég var í mestu makindum á klóstinu og spjallandi við meðpissendur mína og þá kemur til mín maður sem ég var búin að sjá á dansgólfin (ok ég áttaði mig á því að þetta hljómar eins og eitthvað gay sé að fara að gerast en það var ekki þannig) og við förum að spjalla. Hann segir mér að hann sé smiður og segir mér að honum dauðvanti fólk í smíðavinnu, hann spyr mig hvort ég sé að vinna í sumar og hvar ég segi honum að ég sé að vinna í Byko við Hringbraut en ég hafi nú takmarkað vit á smíðum en ef honum vantar málara þá er ég hans gaur. Eitt leiddi að öðru og hann er búin að bjóða mér starf við smíðar, á 1250 kall á tímann, sem er mikið betra en 800 kallinn sem ég fæ núna. Ég til segi ég honum, hann Þekkir víst Rúnar fyrrverandi versunarstjóra og Tona núverandi verslunarstjóra og hann ætlar að hringja í þá og fá meðmæli og hringja svo í mig, eða ég myndi hringja í hann ef hann myndi ekki hringja aftur eftir helgi, og við skiptumst á símanúmerum. Vá af öllum stöðum sem mér hefur verið boðið vinnu þá er þetta furðulegasti staðurinn og verður seint toppað! Þegar ég var að reyna að segja strákunum að mér hefði verið boðin vinna inn á klóstetti sögðu þeir, ha hvað að við að þrífa klósett og skúra?
Fleiri konulausir um þessa helgi eru Toni Verslunarstjóri og Valdi í timbursölunni skemmtið ykkur strákar meðan það er enn tími.
Kveðja Steini konulausi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli