Hæ allir, ég er á leiðinni norður um næstu helgi, mér og Ómari var boðið að koma og skemmta í útskriftarveislu Júlíu konu Villa, Ég tek hopp á föstudaginn og fer aftur á sunnudaginn, Það verður gaman að koma norður, það er næstum eins og að koma heim.
Eins og sumir vita þá er Ómar "svili" minn, fyrir þá sem ekki vita hvað svili þá er það maður/kærasti systur konu/kærustu minnar úff!! Hann er semsagt kærasti Hrannar tvíbbunnar hennar Söru. Við skipum trúbatódúett, sem við höfum eiginlega ekki nefnt neitt ennþá, en við höfum verið að spila á Mongó og svo auðvitað verið að skemmta í partíum og svoleiðis. Það er alltaf góð tilbreyting frá óperunni að poppa aðeins í góðum félagsskap.
fimmtudagur, 7. júní 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Eg var buin ad skrifa langt komment sidast thegar eg komst inn a siduna en eg se ad thad hefur ekki komid inn!!! En allavga i stuttu mali tha bad eg thig um ad skipta um mynd!!! og eitthvad um thad hvad eg er buin ad vra ad gera thessa dagana...astarkvedjur Sara
Skrifa ummæli