Jæja minna en mánuður síðan kallinn bloggaði þvílíkt afrek það, ákvað samt að setja inn blogg í tilefni þess að vera búin í prófum og því að hafa smá tíma fyrir mig sjálfa. Margt búið að gerast þessa síðustu daga og ég er bara alveg búin á því, og kannski fáir sem hafa ekki tekið eftir því. Maðurinn sem sat við hlið mér í flugvélinni hafði meira að segja orð á því hvað það væri gaman að fljúga með mér, hvað ég væri góður félagsskapur, en ég svaf bara alla leiðina. Ég sofnaði áður en við fórum í loftið og vaknaði sv þegar við lentum, fyrir utan fimm sekúndur þegar ég vaknaði við það að flugstjórinn varaði við mikilli ókyrrð framundan.
Annars er bara allt gott að frétta af okkur, Steini er á Sigló og ég á Akureyri yfir jólin. Smá tími í sundur gerir manni bara gott, enda hvorugt okkar komist heim síðan um Versló. Talandi um það að koma heim þá kemur Helga systir líka heim yfir jólin, svo það verða víst góð jólin þetta árið mamma og pabbi, Nonni og svo við systurnar og nýji bumbubúinn. En bumbubúinn hennar Hrannar er víst eitthvað óþekkur þessa dagana, hún er alltaf að kvarta yfir verkjum í naflanum, veit ekki alveg hvort það er bara til að gera mér lífið leitt eða hvort það sé svo slæmt í alvöru....fyrir ykkur sem ekki vitið þá er ég með mikla fóbíu fyrir svona nöflum, sérstaklega þeim sem eru útstæðir og ógeðslegir.
Jæja ætli maður verði ekki bara að fara að pakka inn þessum gjöfum sem ég á eftir að koma í pappír....
GLEÐILEG JÓL
Kveðja Sara
fimmtudagur, 20. desember 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Bið að heilsa naflanum á Hrönn... vonandi hefur hann það gott.
Sé þig kannski eitthvað milli jóla og nýárs, sérstaklega ef það verður einhver snjór í fjallinu!
Ég veit ekki hvort þú sért að ruglast en þú ert kelling ekki "kall" "síðan kallinn bloggaði"
eða hvort þú varst að tala um mig sem "kallinn"
en elska þig, heyrir í þér fljótlega.
Bjöddn: Ég skal skila því til hennar. Hlakka til að hitta þig, sérstaklega ef það verður einn góður dagur uppi í fjallinu ;)
Steini: Kallinn ert þú, þú bloggaðir síðast, fyrir um mánuði síðan...
Skrifa ummæli